Ásgeir í Gottorp og Blesi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ásgeir í Gottorp og Blesi

Fyrsta ljóðlína:Enn er Geiri á glófextum
Viðm.ártal:≈ 0
Enn er Geiri á glófextum
gota, dreyralituðum
og með fleiri einkennum
andlitsgeira mjallhvítum.

Marinn rakki ramefldur
reisir makkann tygjaður.
Er sem hlakki hervæddur
hildarsvakki, víkingur.

Geiri sest á gjarðarmar
gjöfum hresstur Bakkusar
sýnist flestum saman þar
sveinn og hestur fornaldar.

Mökkur gýs úr götunum
grjótið frýsar eldingum.
Reiðargnýs með gagnyrðum
grundin lýsir tilþrifum.

Engar leiðir ellin fann
enn að veiða léttfetann.
Vorið heiða vermir ´ann
vængi breiðir yfir hann.

Ekkert slaknar á honum,
einskis sakna hjá honum
ljóðin vakna, ljá honum
lof, sem raknar frá honum.


Athugagreinar

Valdimar Benónýsson á Ægissíðu orti um vin sinn, Ásgeir Jónsson í Gottorp, og reiðhest hans, Blesa.