| Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra
AAAA15

Ekki hót ég á mér finn

Flokkur:Afmælisvísur


Tildrög

Eftir afmælisveislu hjá Jóhanni Daníelssyni 1985.
Ekki hót ég á mér finn
ögn þó vaxi móður.
„ Þakka sopann mágur minn
mikið var hann góður „.

Átt hef ég á ýmsu völ
aldrei þurft að kvarta.
En gestrisni og gómsætt öl
gleður vesælt hjarta.