Tilbrigði við óstýfða sonnettu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Tilbrigði við óstýfða sonnettu

Dæmi

Ó! að eg mætti, meyja, einu sinni
>mynd þína líta hreina og ástarbjarta,
>og enn þá horfa í augað þitt blásvarta
er í þvi gleði hrein og elska brynni,
og vefja um þig eitt sinn hönda minni
>og aftur finna mér í hjarta streyma
>sæluna fornu', er fundum bæði heima
er fagra þrýsti' eg, meyja! höndu þinni.
Þá væri svalað þessu tóma hjarta,
>er þorstann núna hvergi sefað getur,
og hagur skyldi' ei heldur framar kvarta.
Mig langar annars lengur ei til, meyja,
>en líta þig, svo flýi hjarta vetur,
og svo úr heimi héðan glaður deyja.
Gísli Brynjúlfsson

Ljóð undir hættinum