Stafhent – Skárímað, frumstiklað | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Stafhent – Skárímað, frumstiklað

Lýsing: Stafhent – oddhent (frumstiklað) samsniðhent (skárímað – frumstiklað) er eins og stafhent oddhent nema hvað hendingar (rímliðir) í fyrriparti gera einnig sniðhendingar við hendingar í seinniparti.
Þórður Magnússon á Strjúgi (á 16. öld) orti fjórðu rímu Valdimarsrímna undir þessum hætti.

Dæmi

Rauður jór með flýti fór
fagurlima-svæðin stór,
sat hann Kár í söðli hár,
sveif á skeiði hestur frár.
Sveinbjörn Beinteinsson, Bragfræði og háttatal, vísa nr. 251, bls. 46

Lausavísur undir hættinum