Gagaraljóð – gagaravilla? stímuð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Gagaraljóð – gagaravilla? stímuð

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,4,4,4:aaaa
Innrím: 1A,1D,3A,3D;2A,2D,4A,4D
Bragmynd:
Lýsing: Gagaraljóð – frumsniðstímuð – síðstímuð (fornstíma) eru eins og gagaraljóð óbreytt nema hvað í þessum hætti gera fyrstu og síðustu kveður frumlína sniðhendingar langsetis og fyrstu kveðurnar þar af leiðandi einnig sniðhendingar þversetis sín á milli. Fyrstu og síðustu kveður síðlína mynda aftur á móti aðalhendingar langsetis og þar af leiðandi einnig þversetis sín á milli.
Síðasta ríma Mírmantsrímna, tólfta ríma, er kveðin undir þessum hætti en seinni hluti rímnanna hefur sennilega verið ortur rétt fyrir 1600.

Dæmi

Grun hef eg, að gefist laun,
greinin máls þó verði sein.
Mun sá finna megna raun,
um mein er gjörir að taka stein.
Hallgrímur Pétursson: Tíunda Króka-Refs ríma, 2. vísa.