Sonnetta, óstýfð, síðstuðluð, fyrsta rímblokk endurtekin | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sonnetta, óstýfð, síðstuðluð, fyrsta rímblokk endurtekin

Dæmi

Nú sit ég einn í svölum aftan-kalda
og silfurhvítum horfi eftir linda,
sem bungar fyrir blástri sunnanvinda,
þar blá og dimm sig reisir fjarðar-alda.
Heill sértú, blær, og vonarljósið valda,
sem veit ég af að baki dökkra tinda,
og heill sértú, þú hreinust allra mynda,
sem hylst mér nú á bakvið jökulfalda.
Þig skal ég, mey, í mínum huga geyma,
og aldrei muntu mér úr minni líða,
þú munarskæra, sem ég unni lengi.
Um þig mig skal á dimmri nóttu dreyma,
og þegar ljómar fagrahvelið fríða,
þá fyrir þig ég hreyfi gígjustrengi.
Benedikt Gröndal: Fjarri

Ljóð undir hættinum