Braghent – samrímað – framhent (mishent) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Braghent – samrímað – framhent (mishent)

Kennistrengur: 3l:[o]-x[x]:6,4,4:AAA
Innrím: 1A,1B;2A,2B;3A,3B
Bragmynd:
Lýsing: Braghent – samrímað – framhent (mishent) er eins og braghent óbreytt, auk þess sem fyrsta og önnur kveða hverrar braglínu gera aðalhendingar langsetis.
Þessi háttur kemur þegar fyrir í gömlum rímum og er önnur ríma í Griplum kveðin undir honum en þær rímur gætu verið frá síðara hluta 15. aldar.

Dæmi

Kvinnur, svinnar kann eg mín í kvæðum prísa,
enn skal henni önnur rísa
orðum skorðuð lystar-vísa.
Griplur II:1

Lausavísur undir hættinum