Stafhent – framhent (mishent) háttabönd | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Stafhent – framhent (mishent) háttabönd

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,4,4,4:aabb
Innrím: 1A,1B;2A,2B;3A,3B;4A,4B;
Bragmynd:
Lýsing: Stafhent – framhent (mishent), háttabönd er eins og stafhent óbreytt nema hvað í þessum hætti gera fyrsta og önnur kveða hverrar línu aðalhendingar langsetis.
Þessi háttur kemur þegar fyrir í gömlum rímum. Fimmta ríma í Ólafsrímum Tryggvasonar út af Svöldarorrustu er undir þessum hætti og einnig fjórða ríma í Gríms rímum og Hjálmars en rímur þessar eru trúlega hvorar tveggja frá 15. öld.

Dæmi

Undin stundi en öðling féll,
óð í blóði hrævasvell;
dauðinn bauð í darrasveim
drósin ljósa Viðris heim.
Gríms rímur og Hjálmars IV:12

Lausavísur undir hættinum