Gagaraljóð – framhend (samhend)- | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Gagaraljóð – framhend (samhend)-

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,4,4,4:abab
Innrím: 1A,1B,2A,2B,3A,3B,4A,4B
Bragmynd:
Lýsing: Gagaraljóð – framhend (samhend) eru eins og gagaraljóð óbreytt nema hvað í þessum hætti gera fyrsta og önnur kveða hverrar línu aðalhendingar langsetis og þversetis. Helgi Sigurðsson nefnir háttinn Gagaraljóð – hringhend – þráhend.

Dæmi

Ljóðin góðu yrkir einn,
óðinn fljóðum sýnir þrátt.
Rjóðum tróðum sinnir sveinn,
sjóður gróða vex um nátt.
Höfundur ókunnur