Halldór Helgason Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum | Kvæðasafn Borgfirðinga
Kvæðasafn Borgfirðinga

Innskráning ritstjóra

Halldór Helgason Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum 1874–1961

EITT LJÓÐ — ÁTTA LAUSAVÍSUR
Halldór var fæddur á Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum, sonur hjónanna Helga Einarssonar og Guðrúnar Halldórsdóttur. Hann var um skeið kennari í Hvítársíðu og Stafholtstungum. Halldór bjó á Ásbjarnarstöðum 1904–1907 og síðan í tvö ár í Fljótstungu í Hvítársíðu. Þá flutti hann aftur að Ásbjarnarstöðum og bjó þar til 1943 og átti þar heima til dauðadags 1961. Kona hans var Vigdís Valgerður Jónsdóttir frá Fljótstungu. Eftir Halldór liggja tvær ljóðabækur, Uppsprettur 1925 og Stolnar stundir 1950. (Sjá einkum Borgfirzkar æviskrár IV, bls. 148– 149)

Halldór Helgason Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum höfundur

Ljóð
Til Þuríðar á Svarfhóli ≈ 1920–1923
Lausavísur
Áður löngum léttur
Eiginlega ekkert ber
Farinn er ég að finna það:
Heillavinir heyrið þið:
Víst eru tónagripin góð
Þegar dögg og sumarsól
Þó að vefjist vetrarsnjó
Þótt hann léki á oddi als