| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Ægistörfin ykkur kunn

Ægisstörfin ykkur kunn
eru hvorki veik né þunn
er súðahest að svalri unn
setið þið á fremsta hlunn.

Þegar lag að landi ber
leggið krafta einn og hver
Út á sjóinn fleyið fer
fallega þá róið er.

Með samanstilltum hug og hönd
haldið þið á ránarlönd
Fyrr en dags er risin rönd
reist er tré og seglin þönd.