| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Að himinhnöttum gef ég gætur,

Heimild:Fésbók
Tímasetning:2021


Tildrög

Skammdegið hafið
Að himinhnöttum gef ég gætur,
með glætu af tungli við hundsins ból,
en til hvers er að fara á fætur,
fyrst að það er engin sól.

Hellt er yfir heiminn myrkri
hríðarmugga skerðir sýn.
Held um staf með hendi styrkri,
heim svo rati og inn til mín.

Víst þar bíður volgur sopi,
viðmót þýtt og mjúkust snót.
Fellur burtu gagnsær gopi,,
gefast þekkust ástarhót.