| BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra
AAAA1

Presturinn byggir hús sitt á tveimur hæðum


Um heimild

Fyrri vísan er skráð eftir tölvupósti frá Sigurði Sigurðarsyni dýralækni til skrásetjara, Kristjáns Eiríkssonar, 16. febrúar 2012, en sú seinni eftir tölvupósti frá Jóhönnu Skúladóttur skjalaverði, 17. janúar 2014, sem hefur vísuna þannig eftir Sigurjóni Valdimarssyni á Glitstöðum og Jóni Blöndal Langholti, nágranna Jakobs. Bústaður þessi var byggður fyrir Hvanneyrarprest í Bæ í Bæjarsveit. en Jakob kom þar að steypuvinnu.
Presturinn byggir hús sitt á tveimur hæðum
á hellubjargi, enda er í gömlum fræðum
aðstæðum slíkum hrósað á ýmsa lund.
Á efri hæðinni er ætlunin að prestur
ákalli drottinn og stundi sinn bænalestur.
Á neðri hæðinni ávaxtast auðsins pund.

og hin:


Mótin fyllast meðan drottins andi
mildur svífur yfir þessu landi
heiður og hreinn.
Við horfum yfir handarverk að lokum
hér var steypt úr fjöldamörgum pokum
utan um einn.