| BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra
AAAA1

Fyr eg aldrei fann hvað hörð

Bls.257
Flokkur:Samstæður

Skýringar

Fyrirsögn: Ferðbúinn til Vesturheims
Fyr eg aldrei fann hvað hörð
fátækt orkað getur.
Hún frá minni móðurjörð
mig í útlegð setur.

Eftir hálfrar aldar töf,
ónýtt starf og mæði
leita' eg mér nú loks að gröf
langt frá ættarsvæði.