| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Mér virðist líka vatnskassinn
vera i tengingunum
og starf sitt vinnur startarinn
stendur ekki á honum.

Aðgerðar sést engin þörf
þótt undir mér sé kropið
pípa hver sem passar störf
og pústurrörið opið.

Hallast ég nú helst að því
þótt hætt sé að þessu skyni
að skipta um drif og öxul í
Agli Jónassyni.