| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Ort í orðastað vinnumanns,sem kaupakona bað að lána sér hross í kaupstaðarferð.
Langar mig að ljá þér hross,
listasvanninn fríður,
bara ef að kaffi, koss
og krónu mér þú býður.

Þegar hún hafði Rauðku reynt
röska eftir vana,
auðargrundin óskar beint
að eignast mig og hana.