| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Til Indriða Pálmasonar . Svar við Dáir ljóðin ...

Skýringar

Hýrgar blóð við hornaflóð
hrærir ljóðagígju streng.
Metur óðinn, öl og fljóð
eins og góðum sæmir dreng.

Mér var hressing mesta að fá
mærðarvers frá greppi.
Höldur þessi óðal á
Arnarness í hreppi.