| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Hitler er dauður og horfinn sem pest


Tildrög

Hjörtur Laxdal, rakari á Sauðárkróki, var fæddur 21. desember 1908 og dáinn 12. maí 1946. Þar sem 21. desember var einnig afmælisdagur Stalíns spyrtu menn þá félaga stundum saman í gamni enda mun Hjörtur fremur hafa hallast til vinstri í þjóðmálum og óskað bandamönnum sigurs í heimstyrjöldinni miklu. Góður kunningi Hjartar var Ludvig Kjemp, vegavinnuverkstjóri í Skagafirði. Kjemp átti til Þýðverskra að telja í ættir fram og var af sumum talinn hliðhollur Þjóðverjum. Það mun hafa verið í maí árið 1945, ef til vill 1. maí eða á   MEIRA ↲

Skýringar

Hitler er dauður og horfinn sem pest,
Himler tók eitur og dysjast í gjótum,
Quisling þeir hengja sem kött fyrir rest
en Kemp liggur blindfullur norður í Fljótum.

(Sjá: Sveiflað er fánum og sungið er lag)