| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Langa vegi haldið hef


Um heimild

Kristján Eiríksson frá Fagranesi á Reykjaströnd (f. 1945) lærði vísuna þannig og heyrði svo sagt frá tildrögum hennar.


Tildrög

Vísuna kvað Sveinn við konu sína er hann kom norður til hennar sunnan úr Reykjavík, kominn með krabbamein sem læknar réðu ekki við. Er þetta seinasta þekkta vísa Sveins.

Skýringar

Langa vegi haldið hef,
hindran slegið frá mér.
Hingað teygja tókst mér skref
til að deyja hjá þér.