| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Á Skagafirði er enginn ís.
Aldrei trúi ég þar fylli.
En Látrastranda flóinn frýs
frónsjaðranna milli.

Fyrst þar ekki frjósa má
sem frá því kjörin segja.
Hvort mun það af hita þá
að hrossin út af deyja?

Standa á þambi lítil lömb
í löngum firði Skaga.
En ærnar hafa enga vömb
í Árskógsstrandar haga.