| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Lukkan forðast lýðinn hér

Bls.10. febrúar 2005, bls. 16


Tildrög

Á þorrablóti Kvæðamannafélagsins Iðunnar svaraði höfundur spurningunni um hvar hamingjan byggi.
Lukkan forðast lýðinn hér,
litlar tryggðir bindur.
Sá sem höndlar hana er
heimskur eða blindur.