| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Sent vini og nágranna sem hugði á för til Vesturheims, en hann hætti við.
Ertu á förum elsku vinur!
Út í heiminn. Vestur í bláinn?
Á að fara í ólgusjáinn
ættar vorrar megin hlynur?

Hver á að signa þína móður
þegar hennar son og sjóður
sokkinn er í þjóðarhafið?
Hver á að gæta að grafarrónni
græða svörð á blásnu leiði
þegar sólin suður í heiði
sendir geisla moldarþrónni?