| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Ven þig á að segja satt.
Sóma jafnan gættu.
Lygin mörgummanni hratt
í mesta böl og hættu.

Talaðu ekki um aðra ljótt.
Íllmáll virðing glatar.
Sittu ekki í solli um nótt.
Svall inn góði hatar.

Leitaðu þeirra lofs er þér
með lofi sóma veita.
En heimska er að ætla sér
allra hrós að leita.