| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

30 ára afmæli Iðunnar.
Gleðiveiðar göngum á
glögg er leið til fanga.
Þoku greiðist gríma frá
grænum heiðarvanga.

Glitra lindir glóir mar.
Glæstir tindar skína.
Ský og vindur skrautlegar
skuggamyndir sýna.

Speglar flæði teig og tind.
Tindra slæður vallar.
Geislum klæðir ljóssins lind
lægð og hæðir allar.

Aftan boðar útsýn ný
okkur skoða lætur.
Ofnar roðarósir í
rekkjuvoðir nætur.