| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Bakkus gamli gaf mér smakka

Bls.12/2005


Tildrög

Gömul vinkona Káins skammaði hann fyrir drykkjuskap og taldi að ef Bakkus hefði ekki orðið honum svo fylgispakur væri hann giftur maður fyrir löngu. Um þetta kvað Káinn.
Bakkus gamli gaf mér smakka
gæðin bestu, öl og vín.
Honum á ég það að þakka
að þú ert ekki konan mín.