| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Vondslega hefur oss veröldin blekkt

Höfundur:Jón Arason biskup
Bls.bls. 16-17.


Tildrög

Sagt er að Jón hafi ort þessa vísu þegar lögmannsdómur hafi verið rofinn á honum og sonum hans og þeim ætlað líflát.
Vondslega hefur oss veröldin blekkt,
villt og tælt oss nógu frekt,
ef eg skal dæmdur af danskri slekt
og deyja svo fyrir kóngsins mekt.