| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Undir fergjast feikna snjó

Heimild:Safnamál
Bls.15. árg., bls. 56


Tildrög

Fljótin eru annáluð fannakista svo að fáar sveitir komast þar í samjöfnuð. Mánuðum saman sér hvergi á dökkan díl.
Undir fergjast feikna snjó
fylgsnin dverga smáu.
Nú er hvergi nakin tó
nema bergin háu.