| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Þetta sýsl er þér ei hent... er svar við vísu sr. Björns í Laufási: Alla tíð á Gísla grey grátleg stríðir blindni. Skammahýðið skilur ei hvað skuli þýða blindni. Þessi gæla... er svar til Björns á Laufási vegna vísunnar: Um að sýsla er ekki hent þótt ölvað rísli svínið. Látum Gísla belgja brennt bölvað píslarvínið.
Þetta sýsl er þér ei hent.
Þú færð hríslu á trýnið.
Og hels við gísling belgir brent
bölvað píslar vínið.

Þessi gæla úr anda á örn
enga fælu vekur.
Sjáið þrælinn bola Björn.
Bófinn æla tekur.