| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Í orðastað Þuríðar Sigurgeirsdóttur.
Ég elska blóm og að þeim hlynni.
Einkum dafna virðast mér
þau, sem hjá mér eru inni
þótt ekki stundi hin ég ver.

Ég vatna þeim og við þau losa
visinn anga og sölnað blað.
Mér finnst sem blessuð blómin brosa
blíðlega til mín fyrir það.

Gædd eru blessuð blómin skyni
Blíð er þeim lund og hýr.
Þau þekkja sína virktavini
og gjört hvað að þeim snýr.