Jón Ólafsson ritstjóri | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Jón Ólafsson ritstjóri 1850–1916

FIMM LAUSAVÍSUR
Jón var fæddur 20. mars 1850 á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði. Hann var sonur séra Ólafs Indriðasonar og konu hans, Þorbjargar Jónsdóttur frá Dölum. Hann var tekinn í Reykjavíkurskóla þrettán ára gamall 1863 og lauk þaðan fyrra hluta brottfararprófs 1868. Hann gerðist þá ritstjóri tímaritsins Baldurs sem hann ritstýrði til 1870. Tvisvar hrökklaðist hann úr landi vegna skrifa sem ergðu stjórnvöld, en hann þótti hvassyrtur og óbanginn við að senda tóninn þangað sem honum fannst að ætti við. Hann var ekki síst þekktur fyrir kveðskap sinn en hann orti til dæmis 21 árs gamall „Máninn hátt á himni skín.“

Jón Ólafsson ritstjóri höfundur

Lausavísur
Aldrei hljóta af argi frið
Eftir marga málfundi
Ég er hissa hreint á því
Íslenskan í álögum
Vel má lifa á landi hér