Bertel Edvard Ólafur Þorleifsson skáld | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Bertel Edvard Ólafur Þorleifsson skáld 1857–1890

TVÆR LAUSAVÍSUR
Fæddur (líklega) á Keldulandi í Skagafirði. Foreldrar Þorleifur Sigurðsson lyfsalasveinn og k.h. Ingiríður Ólafsdóttir. Ólst upp í Reykjavík. Stúdent í Rvík 1879 og hóf sama ár nám við Kaupmannahafnarskóla. Stundaði nám í læknisfræði en vanrækti nám sitt og tók ekki próf. Hugur hans hneigðist að skáldskap og var hann einn af útgefendum tímaritsins Verðandi 1882. Drukknaði í borgarsíki í Höfn. (Ísl. æviskrár I, bls. 152; Ísl. Hafnarstúdentar, bls. 227.).

Bertel Edvard Ólafur Þorleifsson skáld höfundur

Lausavísur
Dundi grund og hló við hóf
Valt er að treysta á vinina