Friðgeir Árnason 1827–1872
TVÆR LAUSAVÍSUR
Friðgeir var fæddur upp á Laxárdal 16. okt. 1827, sonur Árna Jónssonar ógifts bónda á Tungubakka, og Þuríðar Guðmundsdóttir vinnukonu á sama bæ. Árni kvæntist tveim árum síðar annarri barnsmóður sinni, Ketilríði Ketilsdóttur, systur góðbóndans og vísnasmiðsins Guðmundar Ketilssonar á Illugastöðum. Þó sambúð þeirra hjóna yrði stutt hefur Friðgeir fengið mætur á stjúpu sinni en eftir henni skírði hann Ketilríði dóttur sína. Friðgeir ólst upp með föður sínum sem bjó víða á Laxárdalnum. Hann þótti ódæll á ungdómsárum sínum og MEIRA ↲
Friðgeir var fæddur upp á Laxárdal 16. okt. 1827, sonur Árna Jónssonar ógifts bónda á Tungubakka, og Þuríðar Guðmundsdóttir vinnukonu á sama bæ. Árni kvæntist tveim árum síðar annarri barnsmóður sinni, Ketilríði Ketilsdóttur, systur góðbóndans og vísnasmiðsins Guðmundar Ketilssonar á Illugastöðum. Þó sambúð þeirra hjóna yrði stutt hefur Friðgeir fengið mætur á stjúpu sinni en eftir henni skírði hann Ketilríði dóttur sína. Friðgeir ólst upp með föður sínum sem bjó víða á Laxárdalnum. Hann þótti ódæll á ungdómsárum sínum og fékk þessi ummæli rituð í kirkjubókina frá prestinum, fermingarföður sínum: „Vel kunnandi, gjálífur.“ Á góðbýlinu Mörk hóf Friðgeir búskap með konu sinni en þau fluttu fljótlega til næsta bæjar, Hvamms, og þar bjó hann til dauðadags 4. apríl 1872. (Heimild: Tölvupóstur frá Inga Heiðmari Jónssyni 11. mars 2011) ↑ MINNA