Til Guðm. Friðjónssonar 12. apríl 1934 | Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga
Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga

Innskráning ritstjóra

Til Guðm. Friðjónssonar 12. apríl 1934

Fyrsta ljóðlína:Svinnum vini svanna og ljóða
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1934
Flokkur:Ljóðabréf
Svinnum vini svanna og ljóða
sendir kossa vorsins dís.
Kveðju hlyni Braga bjóða
beint frá oss, í dag hún kýs.

Þökkum vildargestur góði
gripin snilldar tökin mörg.
Lifa skyldu í orði og óði:
Ólöf, Hildur, Lilja, Björg.

Þína um „Heimahaga“ kunna
hef ég sveimað, snemma og seint.
Þar má dreyma, una, unna
um þá streymir vorloft hreint.

Hallur gestur andans arði
auðgað flesta getur þar.
Margur hresstur gekk frá garði
góðu nesti byrgur var.

Þar er andans höll þín hafin
hún á „sandi“ byggð er síst.
Hún mun standa, heiðri vafin
hennar land í auðn ei snýst.