Afavísur | Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga
Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga

Innskráning ritstjóra

Afavísur

Fyrsta ljóðlína:Hann afi minn er lítill með liðað snjóhvítt hár
Höfundur:Ásgeir Jónsson
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Ævikvæði
Hann afi minn er lítill með liðað snjóhvítt hár
þau loga af fjöri augun hans þó hvítar séu brár
og alls staðar sem gleði og gaman er á ferð
í glaðværasta hópnum hann afa minn þú sérð.

Já, afi minn er glaðvær á gleðimót hann fer
og gaman er í dansinum að sjá hann snúa sér
og þó hann sé um áttrætt þeim unga skákar hann
því allar stúlkur dásama þennan glaða mann.

Til framkvæmdanna aldrei hann afi minn er seinn
það átti ekki við hann að lifa svona einn
og allt í einu í gærkveldi hann gifti sig á ný,
já, gullfallegri stúlku ég varla trúði því.