Blómið á melnum | Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga
Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga

Innskráning ritstjóra

Blómið á melnum

Fyrsta ljóðlína:Þú fagra blóm, er blikar meðal steina
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Náttúruljóð
Þú fagra blóm, er blikar meðal steina
á berum, annars gróðurlausum aur
og vottur lífs hér ert og prýðin eina
mun á þig verða reynt að kasta saur?

Mót árdagssól þú brosir, blómið unga,
og býzt að vermast geislum langan dag
hvort mun ei einhvers tuddans skaðráð tunga
þér tjón fá unnið fyrir sólarlag?

Þú blómjurt smá, er byrjað fékkst þann starfa
að breiða yfir melinn gróðurlag,
að endurbæta landið, þjóð til þarfa
munt þú ei fótum troðin verða í dag?