Söknuður | Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga
Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga

Innskráning ritstjóra

Söknuður

Fyrsta ljóðlína:Á býlinu heima óx blómi kvistur einn
Viðm.ártal:
Flokkur:Náttúruljóð

Skýringar

Í handritinu vantar síðustu línuna í 2 erindi.
Á býlinu heima óx blómi kvistur einn
svo broshýr ogs skemtinn og þýður
hann var svo fagur og frábær og hreinn
svo frjáls og svo unnar blíður.

Sem liljan á móti morgninum hlær
þá myrkrinu dagbjarminn eyðir
svo brosti hann mildur við móðurbrjóst kær
[..................................................]

Þá dunaði í tindunum dimm þutu ský
úr dimmunni eldingin þýtur
hún lífinu ei hlífir og hver mun þá frí
og hver mun sá lífstjónið hlýtur.