Á leið ofan Fagradal | Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga
Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga

Innskráning ritstjóra

Á leið ofan Fagradal

Fyrsta ljóðlína:Ýtir undan fæti
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1888
Flokkur:Bænir og vers

Skýringar

Ferð um Fagradal 12. október 1888.
Ýtir undan fæti
yfir Fagradal
von að guð nú gæti
gleðja það mig skal.

Heima vaki vífið
votum hvörmum með,
fyrir hana léti ég lífið,
ef létti ég hennar geð.

Í hennar faðmi fríðum
ég feginn deyja vil
og kystur kossi blíðum
kverfa jarðar til.

Og síðar lífs á landi
lausnarans við hlið
mun una sæll vor andi
í yndi, sælu og frið.