Veðraskiptin innri | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Veðraskiptin innri

Fyrsta ljóðlína:Æsir hug minn ofurstríð
bls.217
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aBaBcc
Viðm.ártal:≈ 1900
Æsir hug minn ofurstríð
angur, hatur, reiði,
rétt sem ský er rokna hríð
rekur yfir heiði,
þétt af vætu, þrungin glóð;
þjóta í tindum vindahljóð.

Æðir skúr en í því brýst
ástsól skýin gegnum,
góða veðrið brátt til býst,
bregður stormi og regnum;
verður sál, þá svakinn flýr,
sólskinsdalur friðarhýr.