Kyrrð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kyrrð

Fyrsta ljóðlína:Nú stafar fölleitt tungl á tind
bls.185
Viðm.ártal:≈ 1875
Nú stafar fölleitt tungl á tind
og tæra niðrá fjallalind;
í dala reitum rósir gróa,
á rauðum laufum döggvar glóa
í vestanvind.

Ég sit í dal við stríðan straum
og stari niðrí öldu draum,
þar margir svipir bleikir blunda
og bíða kannski seinni funda
við gleðiglaum.

Þar hvílir beði blóðgum á
hið bjarta sverð hjá stirðum ná,
og fölvar meyjar faðminn breiða,
og fornra minnast ástarleiða
sem flúðu frá.

Við fossinn dunar hörpu hljóð
um hetjuverk og ást og blóð —.
Hví syngur þú í sælu nætur
um sorg og hel og mey sem grætur,
mín gígjan góð?

Í ævistraumi ótal kvein
við unnar glymja kaldan stein,
og milli þeirra hörpur hljóma
með himnarödd og fegri róma,
sem mýkja mein.