Til móður minnar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til móður minnar

Fyrsta ljóðlína:Aldraða móðir! þú ert þreytt
Þýðandi:Grímur Thomsen
bls.401
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt abaab
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Aldraða móðir! þú ert þreytt,
og þinn er sveiti blóð
en allt um það er hjartað heitt;
hefur þú styrk í arm mér veitt
og sálu minni móð.
2.
Og þerrað títt mér tár af kinn,
er tíð var hörð og ströng,
og kysst mig, drenginn kæra þinn,
og kröftugum mér blásið inn
í anda sigursöng.
3.
Þú hefur, gamla! miðlað mér
af mildri hjartarót,
svo hvar sem eg um foldu fer,
þá fremst af öllu ann eg þér
og man þín móðurhót.