Hvar ertú? | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Hvar ertú?

Fyrsta ljóðlína:Hvar ertú, sem ég unni?
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) AbAbccDD
Viðm.ártal:≈ 1875
Hvar ertú, sem æ ég unni?
Efst við þögult segulskaut!
Mitt í ægum alheims brunni
áttu marga blómalaut.
Þar er ást og þar er mey!
þar er fögur garðars ey!
Þar um eilífð þylur bára
þraut og yndi fornra ára.

Þar í tíðar dimmu djúpi
dagar liðnir gengu heim,
orpnir Skuldar undrahjúpi,
aldrei samt ég gleymi þeim!
Mun ég aldrei aftur fá
upp úr gröf að vekja þá
og til dóms og dauða kalla
daga þá og fendur alla?