Sveinn Pálsson | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sveinn Pálsson

Fyrsta ljóðlína:Eins eru skýin sem áður
bls.188-190
Bragarháttur:Solveigarlag
Viðm.ártal:≈ 1825–1850
Tímasetning:1840

Skýringar

Undir fyrirsögn stendur að Sveinn hafi dáið 24. apríl 1840.
1.
„Eins eru skýin sem áður“
í elli þú mæltir,
þegar bölheimur brigðull
baki' að þér sneri!
Andi sveif þinn hið efra,
það efra' hönum móti
hýrlega hló og benti
til heimkynna réttra.
2.
Eins voru blómin sem áður
fyr augum þér, frændi!
þá hneit þér hjarta it næsta
hjörinn forlaga —
brotnuðu boðar mótlætis
á baki þér sjálfir,
en seggir sáu þig standa
hinn sama og áður.
3.
Frjáls þinn og auðugur andi
sér átti og nýtti
álfaslot hvörjum í hamri
og hægindi í skýjum,
búgarð hvörs í blómsturs
bikari miðjum
og hvörn til viðtals sér valdi
af vitringum liðnum.
4.
Örlaga örvar því náðu
þig aldrei að fella,
að undanfæri þinn andi
ætíð sér hafði —
var hann að Ieikum með liðnum
eða ljósálfum muna,
harmanornir þá heima
hann hugðu að finna.
5.
Bautastein Bjarna þú reistir
og bautastein Jóni —
sjálfum þér settir þú varða
er seint munu falla.
Barna vor börn munu lofa
blómstrin þíns penna,
og margir leita þess leiðis
hvar liggur Sveinn Pálsson.



Athugagreinar

Kristján Eiríksson bjó til skjábirtingar