Til Keysers | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Til Keysers

Fyrsta ljóðlína:Þó landahringur bylgjum blám
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) ferkvætt aBBacDcD
Viðm.ártal:≈ 1825
Tímasetning:1827

Skýringar

Ort árið 1827. Undirtitill eða skýring fylgir með: „Þegar við vorið 1827 fyrst fundum útsprungin kattaraugu. In prom.
Eiginhandarrit er varðveitt í Árnastofun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 b).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847 [Fyrirsögnin: Til R. Keyser].
Þó landahringur bylgjum blám
ey vora í faðmi feli víðum
en fjarri þú hjá vinum blíðum
á móðurjarðar kætist knjám,
mundu þá samt að eitt það er
ígildi snoturt fegri rósa
gleymdu mér ei, sem grær eins hér
á grundu kaldri norðurljósa.