Faðir til sonar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Faðir til sonar

Fyrsta ljóðlína:Það, son minn, í einlægni segi ég þér
bls.0
Bragarháttur:Átta línur (þríliður) fer- og þríkvætt aBaBcDcD
Viðm.ártal:≈ 1875
Það, son minn! í einlægni segi ég þér,
er sjálfur af reynslunni þekki:
að frekjan í heiminum hlutskörpust er,
en hæverskan dugar alls ekki;
og því áttu' að forðast þá bannsettu blygð;
ef bolastu' að trogi, fæst keppur;
og enn mundu þetta, að úrelt er dygð
nema' aðeins sem hugsjóna-leppur.