Nýja Ísland | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Nýja Ísland

Fyrsta ljóðlína:Þú Íslands nafnleifð elst og mest
bls.1
Bragarháttur:Sjö línur (o tvíliður) Fer- og þríkvætt:aabcccb
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:4.8.1926

Skýringar

Lesið í Árborg, 2. ágúst 1926.
Þú Íslands nafnleifð, elst og mest,
sem eldist lengst, sem reyndir flest
í sveit, að víðum ver:
Sé okkar vísa um þig ger,
hvert orð í henni fagnar þér
og kveðið hlýjum huga er,
um héröð hvar sem fer!

Frá landnámsöld á sæld og sorg
reis sigurþjóðar höfuðborg,
frá auðnum óbyggðs geims. —
Hér stafar yfir æskulönd
bjart aftanskin frá dánar-strönd,
hér mætast kvelds- og morgun-rönd
sjálfs minninganna heims.

Og hver sú dyggð sem íslensk er,
skal endurborin rísa hér
er Saga vitjar vor;
og lengst skal geymd í minni manns,
í mörk og sléttu þessa lands:
in seinast gróna gröfin hans
sem gekk hér landnáms-spor!