(Eitt 1969) þrjú | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

(Eitt 1969) þrjú

Fyrsta ljóðlína:hver dagur / er sjö furður veraldar
bls.11-12
Bragarháttur:Óháttbundið ljóð
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1969
þrjú


hver dagur
er sjö furður veraldar
á einum degi
féllu kíló af ryki
úrkoman margir lítrar
reykt tonn af tóbaki
drukknir sjóar af víni
borðið skippund af kartöflum
hver dagur er sjö furður veraldar
hvað dóu margir
fæddust
hlógu og grétu
elskuðust
allar þessar furður
kvikna slokkna
og lifa kannski sotla stund
í minningu sumra
en umfram allt
slokkna
samt skilur hver dagur eftir spor
þó ekki sé nema sæði
sem smó inní leggöng konu
og kveikti skrítið líf