Emmanúel | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Emmanúel

Fyrsta ljóðlína:Emmanúel er í heiminn sendur
Höfundur:Gunnar Pálsson
bls.2–3
Viðm.ártal:≈ 1735–1755
1.
Emmanúel er í heiminn sendur
oss að rétta kröftugar líknarhendur,
guð blessaður,
mennskur maður,
mest tignaður,
hjálpar hraður
kenndur.
2.
Meyjar af lífi lausnarinn oss fæddur,
lifandi drottinn holdi voru klæddur,
fangaða leysti,
fallna uppreisti,
föðurnum treysti,
guðdóms hreysti
gæddur.
3.
Mitt í dauðans myrkri skein oss sólin,
þá Messías barst á náttarþeli um jólin;
í eymdir seldur
glæpa geldur
guð, sem heldur
eilífan veldis-
stólinn.
4.
Allir því við allar fríir sakir
allsvaldanda guð prísandi vaki;
allar stundir
á allar lundir
um allar grundir
allir undir-
taki.
5.
Nú skín yfir oss náðin drottins skæra,
nú er skyldugt honum lof að færa.
Dýrðar ljómi
föðursins frómi,
fegurðar blómi,
sé þér sómi
og æra.
6.
Ungbarn gjörðist* eilífðarinnar faðir,
ó! hvað fagur leyndardómur það er.
Hold er vorðið
eilífa orðið,
að andar morðið
fengjum forðast
glaðir.
7.
Elskan heit vorn elskuga til þess knúði
að elska og taka sér fyrir ektabrúði
mannkind spillta
af veginum villta,
volæði fyllta,
kvöl sem kvillta
lúði.
8.
Lofaður sértu, ljósið æ skínandi,
lof þitt allir menn og englar vandi.
Dýrð þín framin,
sungin, samin,
sögð og tamin,
um aldir – amen –
standi.




Athugagreinar

6.1 gj°d℥ hdr.