Augun bláu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Augun bláu

Fyrsta ljóðlína:Af öllu bláu, brúður kær
bls.69
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður) ferkvætt aabb
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Af öllu bláu, brúður kær!
hið besta þér í augum hlær;
svo blár er himinbláminn ei,
svo blátt er ekkert „gleym-mér-ei“.
2.
Hvað gaf þeim blíðu-bláma þann,
sem bindur, töfrar sérhvern mann?
Þín elskan hlýja, hreinust sál
og hjarta, sem ei þekkir tál.