Svínárnessvísur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Svínárnessvísur

Fyrsta ljóðlína:Djöfull var nú, drengir, gott að detta í’ða
bls.35
Bragarháttur:Braghent – samrímað eða braghenda samrímuð
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Djöfull var nú, drengir, gott að detta í’ða,
mega frjáls um fjöllin ríða
og fullur oní pokann skríða.
2.
Gríðarlega gáskablandin gerðist reiðin.
Fram með Sandá létt var leiðin
því lostafull og blaut var heiðin.
3.
Gaman var að gista hér og glösum klingja,
sálarskarnið ögn að yngja,
einkanlega þó að syngja.
4.
Mikið lét nú lífið okkur litlu kvíða
meðan kvöldsins kyrrð og blíða
klappaði á vanga Rauðárhlíða.
5.
Forlög góð mig fluttu hingað, fylliraftinn,
aðeins til að opna kjaftinn
og endurnýja sálarkraftinn.
6.
Hjartað fullt af fjallsins yndi finn ég tifa.
Það er sem ég segi og skrifa:
Svona dag er gott að lifa.
7.
Það er eins og inní hausnum ennþá kveði:
ekki man ég allt sem skeði,
en eitt er víst – að hér var gleði.