Titlatog | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Titlatog

Fyrsta ljóðlína:Titlum tíðir anna
bls.255-256
Viðm.ártal:≈ 1750
Titlum tíðir anna;
telja má hið sanna,
klénar virtir kanna
kveðjur fornaldanna:
Virðulegum herra hét
hátitill kónganna;
frómum herra lýður lét
lesinn biskupanna;
heiðarlegum hvervetna
heilsan mundi prófasta;
sæmilega samtlega
sóknarhirðaranna;
góðum bónda gafst kveðja;
gildum klausturhaldara;
ærusömum öfringja
undirþingstólanna.
Nú er segg og svanna
sett um veldi fanna
titla manna
til spanna trónanna,
margfalt eðla
makar seðla
miðlungs-höfðingjanna,
skaust veðeðla á skjanna
skildings mar-kettanna.